Thursday, July 18, 2013

Jamie Oliver og LKL



Ég get ekki boðið fjölskyldunni minni upp á hvað sem í matinn. Ég myndi aldrei kalla konuna mína matvanda, en ég hugsa að ég komist upp með að segja að hún sé með "vandaðan smekk" þegar það kemur að mat (og karlmönnum). Eldra barnið mitt er hins vegar bara matvant (veit ekki hvaðan það er komið), á meðan yngra barnið er eins og móttökustöð hjá Sorpu: Tekur við öllu (veit ekki hvaðan það er komið).

Þegar svona er í pottinn búið er úr vöndu að ráða þegar það kemur að því að elda, sem oftast lendir á fitubollunni á heimilinu. En í raun er ekki svo flókið að elda LKL handa öllum og bæta við eins og einum rétti sem er troðfullur af kolvetnum handa þeim sem ekki blása út við það að hugsa um sælgæti.

Í gærkvöldi var boðið upp á uppskrift frá Jamie Oliver. Kjúklingabringur, kryddaðar með S&P, röspuðum berki af einni sítrónu (2g carb í 100g) og ferskum tímían laufum. Ágætt að skera bringurnar í tvennt á þverveginn til þess að það sé fljótlegra að steikja þær á pönnu. Með þessu var borin fram kartöflumús úr soðnum kartöflum, smjöri og maískorni, sem er hrært út í eftir að kartöflurnar hafa verið stappaðar (ég fékk blómkáls "kartöflumús" með kóríander). Til hliðar: Salat úr basil og tómötum með smá rauðvínsediki og olífuolíu.

Steinliggur og allir glaðir (nema matvanda barnið, sem fékk á endanum brauðsneið).

Wednesday, July 17, 2013

Fituprósentan þokast upp!


Hlunkaðist á vigtina í morgun og í augnablik var ég afskaplega glaður. Vigtin færði mér þau tíðindi að ég var u.þ.b. 500 grömmum léttari í dag en í gær. En svo kom reiðarslagið: Fituprósentan hafði þokast upp um 0.8 prósentustig!

Vöðvar eru þyngri en fita, þannig að eðlilega má velta því fyrir sér hvort að þeir litlu vesalings vöðvar sem ég þó var með hafi horfið og hvalspikið tekið við? Mun leita sannleikans í þessu máli í dag.

(Og á meðan ég man þá passar það fínt að bæta smá smjöri út á eggin á morgnanna til þess að maður kúgist ekki, eins og Anna var svo elskuleg að benda á í kommenti hérna fyrir neðan.)


Tuesday, July 16, 2013

Þjónn: Það er fitubolla á borðinu mínu!


"Eh, nei," sagði þjónninn á einum af betri veitingastöðum borgarinnar. Hvalurinn sem hafði strandað á borði hjá honum í hádeginu í dag hafði spurt hvort að það væri nokkuð hægt að fá eftirrétt sem innihéldi ekki sykur eða væri "low carb". Það var dálítið eins og ég hefði spurt hann hvort ég mætti sofa hjá konunni hans og sparka í hundinn hans.

Annars hefur dagur tvö verið nokkuð áreynslulaus, so to speak. Dagurinn byrjaði á þremur harðsoðnum eggjum. Eftir að hafa troðið þeim í andlitið á mér og skolað þeim niður með hálfum lítra að klakavatni fannst mér ég skilja hvernig föngum í Guantanamo Bay líður eftir að mat hefur verið þvingað niður þverrifuna á þeim. Sem sagt: Þrjú harðsoðin egg á morgnanna eru ekki sexí.

Kvöldmaturinn samanstóð af ofnbökuðum kjúkling með sítrónu í bossanum og blómkáls-kartöflumús, bragðbættri með ferskum kryddjurtum. Salat til hliðar. Fínt stöff. Í eftirrétt andaði ég að mér ótæpilegu magni af rabbabarapæi með rjóma (stolin uppskrift hérna fyrir neðan).

Það er merkilegt með þennan LKL-lífstíl að maður verður dálítið öðruvísi saddur af því að éta mjög lítið af kolvetnum. Það er ekki þessi útkýlda tilfinning sem maður finnur oft þegar maður hefur gúffað í sig vikuskammti af ruslfæði á örfáum sekúndum. Það er eitthvað sem maður þarf að venjast. Svo þetta með hausverkinn. Hann er ekki hressandi, en mér skilst að hann hverfi á nokkrum dögum, til allrar hamingju.



Monday, July 15, 2013

Fitubollan snýst til varnar: Dagur 1

Fyrsti dagurinn hefur verið ágætur og í raun ekki eins erfiður og ég bjóst við. Ég byrjaði daginn á vigtinni og mér til mikillar ánægju var ég kílói léttari í dag en í gær (sem sagt 97.4 kg). Ekki misskilja mig. Ég er ekki á einhverjum undrakúr sem léttir mig um eitt kíló á dag. Því miður. Málið er einfaldlega það að maður er sennilega léttari þegar maður vigtar sig á morgnanna heldur en á öðrum tímum dags, þegar maður er búinn að belgja sig út af alls kyns rusli.

Keypti mér svona Withings WiFi vigt, sem hefur haldið samviskusamlega utan um það hversu akfeitur ég er orðinn og upplýsir mig jafnframt um fituprósentu, mér til mikils ama. Vonandi fara að berast skemmtilegri fréttir frá henni núna á næstunni...

Nema hvað. Morgunmaturinn samanstóð af þremur harðsoðnum eggjum og stóru vatnsglasi með klökum. Þetta var pínu eins og að ég væri að þvinga ofan í mig mat. Hverjum langar í þrjú harðsoðin egg á morgnanna? Eh, ekki mér! Eftir að hafa stöffað andlitið á mér með eggjum sötraði ég grænt te, eins og þetta sem sést á myndinni hérna fyrir neðan, og kaffi. Ommnommnomm, kaffi!

Þetta te fæst líklega í öllum búðum.
Rétt fyrir hádegið gúffaði ég í mig smá LKL-hrökkbrauði með parmaskinku og tveimur bitum af rauðri papriku og skellti mér svo í ræktina. Eftir nokkuð góða æfinginu í hádeginu skellti ég mér á Culican og keypti mér einhvern svona LKL-rétt með kúrbít og nautahakki. Allt í lagi en kannski ekkert til þess að hrópa húrra fyrir.

Eftir því sem dagurinn leið tók ég eftir einu: Ég var aðeins jafnari í orkunni en ég er alla jafna. Og ég fann ekki fyrir svona nagandi svengd eins og ég finn stundum fyrir þegar maður er að éta "venjulega". Eftir vinnu keyrði ég út í Hafnarfjörð og keypti mér dálítið af Atkins vörunum. Það er m.a. hægt að kaupa súkkulaði stykki og próteindrykki sem eru með lágt kolvetnainnihald og því ágætt að hafa við höndina. Að minnsta kosti mun skárra að éta svoleiðis stöff en Snickers (ég fitna við að hugsa um Snickers). 
Þetta stöff er selt í Bætiefnabúllunni í Hafnarfirði.

Kvöldmaturinn samanstóð svo af beikoni og eggjum, með pínulítið af tómatsósu út á. Skolað niður með sódavatni. Ljómandi fínt. Og núna, þegar klukkan er að halla sér í miðnætti, er ég að klára að baka smá hrökkkex úr LKL-bókinni góðu.

Sunday, July 14, 2013

Ég ætla að hætta að vera feitur á morgun

Eins og sjá má af þessu grafi hefur leiðin verið upp á við, undanfarin tvö ár. Ég var í mínu besta formi fyrir u.þ.b. sex árum síðan, þegar ég var um 82 kg.
Jæja, þá er komið að því. Á morgun ætla ég að reyna (enn einu sinni) að grenna mig. Ég er ekki beint akfeitur, en ég hef munað minn fífil fegri. Þegar ég viktaði mig í morgun var ég 98.4 kg. og fituprósentan var komin upp í 27.8 stig. Samkvæmt BMI stuðlinum er ég 29.4, en allt yfir 25 telst vera "overweight" á meðan 30 og yfir er "obese" og þangað langar mig ekki.

Hvernig gerðist þetta?
Jú, ég vinn fyrir framan tölvu, hreyfi mig ekki nógu mikið og borða of mikið. Hugsanlega tengist það líka því að ég á tvö ung börn og þegar maður er í þeim pakka fækkar frístundunum manns ansi mikið. Svo tókst mér líka að skemma á mér lappirnar í langhlaupum. Það hjálpaði ekki. Útkoman: Fílamaðurinn, in the making.

Hvað er vandamálið?
Mitt helsta vandamál er sykurinn og kolvetni. Ég ELSKA kolvetni. Úða þessu drasli í mig eins og það sé engin morgundagurinn. Og áður en maður veit af er maður orðinn of feitur. Allt í einu eru flottu "slim fit" gallabuxurnar í 33-34 orðnar allt of skinny og maður skrifar það á það að maður sé ekki ungur lengur. Yeah right. Jú, vissulega er maður ekkert unglamb lengur (farinn að nálgast fertugt) en ég trúi því að maður velji sér það hvort maður sé feitur eða ekki. Ég hef valið að vera ekki (lengur) feitur.

Um hvað snýst þetta?
Á þessa síðu ætla ég að blogga um árangurinn af low carb kúrnum sem ég byrja á morgun, innblásinn af bókinni Lág kolvetna lífsstílinn og The 4-Hour Body. Ætla að vikta mig á hverjum degi og deila framvindunni með ykkur. Þar sem ég dauðskammast mín fyrir að vera orðinn mun feitari en ég ætlaði mér nokkurn tíma hef ég hins vegar ákveðið að halda nafninu mínu leyndu, enn sem komið er að minnsta kosti.